Pages

Thursday, April 19, 2012

Dót



Jæja þá er maður eitthvað byrjaður að ná sér í eitthvað af dótaríi fyrir hjólið, kíkti á Jón Magg um daginn og fékk hjá honum tannhjól fyrir prologið, 46 tennur, ætti að ná eitthvað meiri hraða með því. Eins og er þá toppar gasið í 130 km. hraða, sem er svo sem andskotans nóg, en kannski gott að ná aðeins meiri hraða þannig að maður verði allavega almennilega hræddur!! Tók líka kúplings- og bremsuhandfang til að hafa til vara, og svo var náttúrulega keyptur keppnis dekkjagangurinn, Pirelli Scorpion að sjálfsögðu! Ný keðja  og nýtt afturljósa- númeraplötubracket. Eitthvað sér nú á plastinu á greyinu og spurning hvort ekki þurfi að dressa Gasið eitthvað upp? Svo þarf maður nú fljótlega að fara að huga að smíði á kassa fyrir flutninginn.
Tannhjólið fyrir prologið

Góssið

2 comments:

  1. Já glæsilegt. Ég er kominn með 64 GB kort sem ætti að duga fyrir ca: 10000 myndir, svo það eins gott að hafa eitthvað að sýna .........

    ReplyDelete
  2. Það held ég að Gasið fljúgi á 46t.

    ReplyDelete